Markaðssetning, texti, hugmyndir
Matthías heiti ég og lærði af þeim bestu þegar á vann hjá Brandenburg auglýsingastofu en er betur þekktur sem Hataramaðurinn sem öskraði sig í hjörtu þjóðarinnar. Ég er verðlaunaður handritshöfundur og tónlistarmaður og hef skrifað fréttir fyrir sjónvarp, prent, útvarp og vef. Textar og hugmyndir frá mér hafa ratað til skemmtilegustu kúnna alheimsins og ég legg höfuðið í bleyti með öllum sem vilja vera lipur, mannleg og í tengslum við fólk.
Hugmyndir
Með reynslu af listum, auglýsingagerð og fréttamennsku hef ég bæði hneykslað og vakið aðdáun. Sköpun er í senn töfrar og vinna en hugmyndir skipta öllu máli.
Textasmíð
Auglýsingar, tilkynningar, fréttir, pistlar, póstar, handrit, þýðingar, athafnir, söngvar, ræður, viðtöl – ég skrifa grípandi texta sem skipta máli.
Almannarómur
Með reynslu beggja megin myndavélarinnar gef ég góð ráð til að tengjast fólki, því framkoma og skilaboð þurfa að vera kýrskýr sama hvernig viðrar.
Tengingar
Ég er einyrki sem á góða vini. Ef hugmyndin kallar á fleiri heila veit ég hvert á að leita, sama hvort það vantar grafíker, tónskáld, myndbandsgúrú eða andlegan stuðning.
Það sem ég er ekki…
…er birtingahús, samfélagsmiðlastjóri, markaðsrýnir og fleira leiðinlegt.
Viltu vinna með mér?
Tökum bolla saman.