top of page

Ég framkvæmi athafnir á borð við giftingar og nafngjafir í nánu samstarfi við hjónaefni og foreldra. Athafnirnar byggja á virðingu fyrir fjölbreyttum óskum, trú eða trúleysi. Þið sjálf veitið umboð, þið sjálf vitið best hvaða merkingu við leggjum í lífið og tilveruna. 

Ég framkvæmi athafnir á borð við giftingar og nafngjafir í nánu samstarfi við hjónaefni og foreldra. Athafnirnar byggja á virðingu fyrir fjölbreyttum óskum, trú eða trúleysi. Þið sjálf veitið umboð, þið sjálf vitið best hvaða merkingu við leggjum í lífið og tilveruna. 

Giftingar: Saman gerum við stóra daginn ykkar einstakan og ljáum hann þeirri merkingu sem ykkur finnst mikilvægt. Athöfnin getur farið fram með fjölbreyttu sniði, ​hún getur verið lítillát, hjartnæm eða gáskafull, í margmenni eða í heimahúsum, allt eftir því sem hentar. 

Í ferlinu felst meðal annars viðtal við hjónaefni, undirbúningur og ráðgjöf ásamt athöfninni sjálfri.

Nafngjafir: Við fögnum nýju lífi og bjóðum barnið velkomið í ykkar innsta hring með því að gefa því nafn. 

Þetta er mikilvæg og merkingarþrungin stund en rétt eins og hjá öllum trúfélögum á Íslandi hefur þessi athöfn ekkert lögformlegt gildi. 

Lífspekifélagið: Ég starfa sem sjálfstæður athafnastjóri í gegnum Lífspekifélagið. Það er vettvangur fólks sem spyr stórra spurninga en einkennisorð þess eru að engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri. Þið þurfið ekki að ganga í félagið til að nýta þjónustu athafnastjóra.

Aðrar athafnir: Ef þið viljið marka annars konar tímamót með táknrænni athöfn getum við mótað hugmyndina saman. Ég hef ekki tekið að mér útfarir.

Bókanir: Hafið samband og tilgreinið dagsetningu, tegund athafnar og annað sem þið hafið í huga.

Með virðingu og tilhlökkun,

Matthías Tryggvi Haraldsson

matthiasharaldsson@gmail.com

S. 849-7615

bottom of page